|
|
|||
|
|
Námið
BA-nám í samfélags- og hagþróunarfræði er nýjung hér á landi. Námið byggir á kenningalegum og aðferðafræðilegum grunni félagsvísindanna með áherslu á orsakir og afleiðingar örra þjóðfélagsbreytinga á Íslandi, í öðrum samfélögum á norðurslóðum og í þróunarlöndunum. Nemendur öðlast góðan undirbúning fyrir störf á sviði samfélags- og þróunarmála á innlendum og erlendum vettvangi og fyrir framhaldsnám í hinum ýmsu greinum félagsvísindanna.
Í náminu kynnast nemendur ýmsum einkennum ólíkra samfélaga og þeim úrlausnar- og álitaefnum sem þau standa frammi fyrir. Meðal umfjöllunarefna eru helstu kenningar og rannsóknir á sviði þjóðfélagsbreytinga, aðferðir tölfræði og vettvangsrannsókna, einkenni náttúrlegs og mannlegs umhverfis, stjórnun byggða- og þróunarmála og starfsemi þróunarstofnana og samtaka. Nemendur fá þjálfun í skipulagningu og framkvæmd rannsókna og framsetningu á rannsóknarniðurstöðum fyrir almenning og fræðimenn.
Námsyfirlit samfélags- og hagþróunarfræði
Samfélags- og hagþróunarfræði er 90 eininga nám til BA-prófs og geta nemendur í fullu námi lokið því á þremur árum. Einnig er hægt að ljúka náminu á lengri tíma í hlutanámi. Í flestum námskeiðum er byggt á svonefndi símati sem gerir nemendum kleift að fylgjast með frammistöðu sinni jafnóðum yfir misserið.
Á fyrsta ári er lagður almennur grunnur að námi í samfélags- og hagþróunarfræði. Fjallað er um iðnbyltinguna og afleiðingar hennar víðsvegar um heimsbyggðina, helstu kenningar í þjóðfélagsfræði og hugmyndastrauma Vesturlanda á 20. öld. Nemendur öðlast jafnframt góða undirstöðu í aðferðafræði félagsvísindanna.
Á öðru ári er fjallað um félagsfræði, mannfræði, hagfræði og stjórnmálafræði sem stoðgreinar samfélags- og hagþróunarfræðinnar, nemendur kynnast meginþáttum í þróunarmálum og öðlast þekkingu íslenskum byggðamálum, málefnum annarra samfélaga á norðurslóðum og helstu þáttum í þróunarsamvinnu. Nemendur fá jafnframt þjálfun í beitingu aðferðafræði félagsvísindanna við úrlausn rannsóknarverkefna.
Á þriðja ári aukast valmöguleikar nemenda umtalsvert og gefst þeim kostur á því að sníða námið að áhugasviðum sínum. Nemendur taka skyldunámskeið um íslensk byggðamál, samfélög á norðurslóðum og þróunarsamvinnu auk námskeiða í kynjafræði og afbrotafræði. Þeir geta jafnframt valið sérhæfð námskeið af margvíslegu tagi innan eða utan deildar auk þess sem þeim gefst kostur á sjálfstæðum rannsóknarverkefnum, vettvangsferðum erlendis og starfsþjálfun.
Náminu lýkur með ritun BA-ritgerðar þar sem nemendur beita kenningalegri, aðferðafræðilegri og efnislegri þekkingu sinni á tiltekið viðfangsefni. Efni BA-ritgerðar er valið í samráði við fasta kennara deildarinnar Kennsluskrá samfélags- og hagþróunarfræði 2006 - 2007
Inntökuskilyrði Stúdentspróf eða sambærileg menntun er skilyrði fyrir innritun í deildina. Eingöngu er hægt að hefja nám á haustmisseri.
Kostnaður Innritunargjöld við Háskólann á Akureyri veturinn 2006 - 2007 eru 45.000 ISK á ári. Bókakaup eru á bilinu 15.000 - 30.000 ISK á ári. Tekið skal fram að mörg stéttarfélög niðurgreiða gjöld og bókakostnað nemenda.
Af hverju Háskólinn á Akureyri?
|
|
|
|
|
|
||
| Síðast uppfærð 30.05.2007 |
|||