|
|
|||
|
Guðmundur Ævar Oddsson, University of Missouri-Columbia
Einar Kolbeinsson, Háskóli Íslands
Hilda Charlotte van Schalkwyk, University of Guelph
Steingrímur Sigurðsson, Fyrirtækjalausnir Mastercard
|
Forsíða BA-nám í samfélags- og hagþróunarfræði er nýjung hér á landi en fyrsti árgangur útskrifaðist vorið 2006. Námið byggir á kenninga- og aðferðafræði félagsvísinda með áherslu á félagslega, hagræna, menningarlega og pólítíska þætti þróunar á Íslandi, í öðrum samfélögum á norðurslóðum og í þróunarlöndunum, í samhengi við hnattvæðingu, umhverfisbreytingar, auðlindanýtingu, atvinnu- og byggðavæðingu, mannauð og sjálfbærni.
Í náminu er lögð áhersla á góða þjálfun í rannsóknaraðferðum félagsvísinda og að nemendum gefist kostur á að vinna að sjálfstæðum rannsóknarverkefnum, vettvangsferðum erlendis og starfsþjálfun. Meðal vettvangsferða erlendis sem farnar hafa verið má nefna rannsóknarferðir til Costa Rica, Nicaragua, Lapplands í Finnlandi og Finnmerkur í Norður-Noregi, Grænlands, Síberíu og til Kóla-skaga í Rússlandi. Starfsþjálfun hefur meðal annars verið í boði hjá Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Rauða krossinum á Íslandi,
Styrktaraðilar rannsóknarverkefna hafa meðal annars verið North2North Mobility Program, Vaxtarsamningur Eyjafjarðar (Vaxey), Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Akureyrarbær, Landsbanki Íslands, Sparisjóður Norðurlands, Félag stúdenta við HA, Þingeyjarsveit, Menningarsjóður þingeyskra kvenna o.fl.
Hægt er að taka hluta námsins í öðrum háskóla innanlands eða erlendis, s.s. í tengslum við Háskóla Norðurslóða (University of the Arctic) en nú þegar hafa þrír nemendur nýtt sér þann möguleika í Hogskolen i Bodö, University of Manitoba og University of Northern British Columbia, með aðstoð North2North. Norðurslóðanámskeið Háskólans á Akureyri eru metin til eininga í þeim fjölmörgu háskólastofnunum sem saman mynda Háskóla Norðurslóða.
Bakgrunnur kennara deildarinnar er fjölbreyttur og hafa þeir tengsl við stofnanir sem bjóða upp á tækifæri til rannsókna, svo sem Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Jafnréttisstofu, Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Alþjóðabankann, svo dæmi séu tekin.
Nemendur öðlast góðan undirbúning fyrir ýmis störf, m.a. á sviði samfélags- og þróunarmála á innlendum og erlendum vettvangi og fyrir framhaldsnám í hinum ýmsu greinum félagsvísinda. Nú þegar hafa nemendur dreift sér í allar áttir til að hefja framhaldsnám og má þar nefna University of Guelph, University of British Columbia, University for Peace í Costa Rica, University of Missouri - Columbia, London School of Economics, Háskóla Íslands o.fl., í fjölbreytilegt framhaldsnám svo sem stjórnmálafélagsfræði, alþjóðasamskipti, alþjóðalögfræði og mannfræði.
Á vordögum 2006 tóku tveir góðir útskriftarnemendur sig til og settu upp þessa heimasíðu til að hægt væri að deila með tilvonandi nemendum þeim góðu hlutum sem bæði nemendur og kennarar hafa komið af stað með námi þessu. Nú á vordögum 2007 er svo verið að bæta við efni sem lýtur að vettvangs- og lokaverkefnum nemenda ásamt fleira gagnlegu efni. Má búast við að á næstu vikum bætist við bæði nýtt og eldra efni sem áhugavert gæti verið að kynna sér. |
|
|
|
|
Síðast uppfærð 28.06.2007 |
|
|