Þetta er logo Háskólans á Akureyri

Þessi mynd sýnir Akureyri og Eyjafjörð að sumarlagi. Kaldbakur fyrir miðri mynd.


  Forsíða

  Kynning

  Heiti ráðstefnunnar

  Dagskrá

  Ágrip af erindum

  Smiðjur

  Gisting og ferðir

  Skráning

 

 

 

 

Hjá öllum vakir þráin að birta öðrum hug sinn [1]

Skólaþróunarsvið kennaradeildar Háskólans á Akureyri efnir til ráðstefnu um samskipti í skólastarfi. Sjónum verður beint að félagslegum, tilfinningalegum og menningarlegum þáttum. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir samskiptum og námi út frá rannsóknum og hagnýtingu í daglegu starfi í kennslu. Fjallað verður um hvernig skólinn getur nýtt samræðuna til aukins náms og betra samfélags og hvaða ávinningur felst í slíkum áherslum.

Siðferðileg gildi eru einn af hornsteinum hvers samfélags. Í samvinnu við heimilin vinna skólar á öllum stigum að því að efla siðferðisvitund og ábyrga hegðun nemenda, þ.e. hvers kyns framkomu, verknað, orðræðu og gagnkvæma virðingu. Samskipti og samræða eru því mikilvægir þættir í öllu skólastarfi. Nemendur eiga að fá tækifæri til þess að tjá skoðanir sínar í rituðu og mæltu máli og þurfa að geta látið þær í ljós.

Aðalfyrirlesarar verða:
Neil Mercer, prófessor við University of Cambridge
Sigrún Aðalbjörnsdóttir, prófessor við HÍ
Kristján Kristjánsson, prófessor við HA
Ingibjörg Auðunsdóttir, sérfræðingur við HA

Á ráðstefnunni verða málstofur þar sem kynnt verða viðfangsefni úr skólum sem tengjast efninu. Ennfremur verða kenningastofur þar sem kynntar verða kenningar sem tengjast samskiptum og námi og því velt upp með þátttakendum hvort og þá hvernig mætti nýta þær í skólastarfinu.

 

 

 

 

 

 

 

 


1 Guðmundur Finnbogason. 1994.  Reykjavík. Rannsóknastofnun KHÍ.
 

Last updated 21.02.2008