|
|
|
|
|
|
|
|
Hjá öllum vakir þráin að birta öðrum hug sinn [1]Heiti ráðstefnunnar er fengið frá Guðmundi Finnbogasyni en í Lýðmenntun sem út kom fyrst 1903 segir hann m.a.: ... því sem einn fær ekki orkað verður auðveldlega afkastað,
fái hann aðra í lið með sér.
Og vald vort yfir öðrum mönnum og áhrif á athafnir þeirra eru mjög komin undir því hve góð tök sálin hefur
á líkama vorum. Hugsanir vorar, tilfinningar og vilja getum vér aðeins miðlað öðrum
með hreyfingum líkamans, með látbragði, orðum og gjörðum.
Allt samlíf manna og það sem af því sprettur á rót sína í því að menn hafa þörf á
að geta látið aðra vita hvað þeim býr í brjósti. Hjá öllum vakir þráin að birta öðrum hug sinn.
Sú þrá er að vísu ekki jafn-sterk hjá öllum, en hún er þó einn sterkasti þátturinn í þræði
þeim er bindur mann við mann. Fagrar hugsanir og viðkvæmar tilfinningar eiga erindi við fleiri
en þann sem fyrstur finnur þær, og eitt hið veglegasta í eðli manns er hin ósíngjarna
löngun eftir að gjöra aðra aðnjótandi þess sem maður á best í eigu sinni,
þráin að heyra dýrðlegustu drauma og helgustu hljóma endurkveða í sálum annarra.
Guðmundur Finnbogason (1994). Lýðmenntun [2. útg.].
|
Last updated 26.03.2008