Þetta er logo Háskólans á Akureyri

Þessi mynd sýnir Akureyri og Eyjafjörð að sumarlagi. Kaldbakur fyrir miðri mynd.


  Forsíða

  Kynning

  Dagskrá

  Ágrip af erindum

  Smiðjur

  Gisting og ferðir

  Skráning

Að beita sverðinu til sigurs sér[1]

 Þessi mynd sýnir stúlkur í Víkurskóla búa til kertaluktir. © Víkurskóli

Námsmat – lykill að bættu námi

Ráðstefna haldin á vegum Skólaþróunarsviðs kennaradeildar Háskólans á Akureyri
14. apríl 2007

Námssmiðjur 13. apríl 2007.


Námsmat er þýðingarmikill og órjúfanlegur þáttur náms og kennslu. Í víðum skilningi lýtur það að því að bæta nám nemanda og starf kennara. Ráðstefnan er því ætluð kennurum á öllum skólastigum og öðru áhugafólki um skólastarf. Til umræðu verða ýmsar áleitnar spurningar eins og: Hver er tilgangur og gildi námsmats á hinum ýmsu skólastigum? Hvað má sjá fyrir um stöðu og þróun námsmats í skólastarfi hér á landi? Á hvern hátt getur námsmat bætt námsaðstæður nemenda? Hvernig er upplýsingum úr námsmati best til skila komið til nemenda, forráðamanna og fræðsluyfirvalda?

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni verða:
Allyson Macdonald
John Pryor
Rúnar Sigþórsson
Val Brooks

Þá munu Brynhildur Anna Ragnarsdóttir og Júlíus Björnsson ræða saman um framtíðarsýn sína á hlutverki námsmats í skólastarfi og þróun þess.

Á ráðstefnunni verður ennfremur fjöldi málstofa þar sem greint verður frá ýmsum aðferðum við námsmat og þróunarverkefnum á því sviði.

SMIÐJUR FÖSTUDAGINN 13. APRÍL 2006


Föstudaginn 13. apríl er boðið upp á námssmiðjur. Í námssmiðjum verður unnið ítarlegar með einstök þemu sem frummælendur á ráðstefnunni stjórna. Hver námssmiðja verður sambland af fræðslu og vinnu þátttakenda þar sem þeir fá rík tækifæri til að læra og æfa sig. Fyrirlestur og innlögn er 25–30% tímans en að öðru leyti fá þátttakendur tækifæri í hópi eða einstaklingslega til ígrundunar, tilrauna og æfinga.  


1 Guðmundur Finnbogason. 1994. Í hug þess sem hugsar skarplega er hver þekking sem hringurinn Draupnir. Níundu hverja nótt drupu af honum átta hringar jafnhöfgir. Og þekkingin er vald. Enginn getur notað eldinn sem þjón sinn án þess að þekkja verkanir hans. Enginn getur beitt sverðinu til sigurs sér, ef hann þekkir ekki odd frá hjöltum. Lýðmenntun (bls. 42). Reykjavík. Rannsóknastofnun KHÍ.


Mikilvægar dagsetningar:

 


Námssmiðjur föstudaginn 13. apríl verða í húsnæði kennaradeildar  Þingvallastræti 23
 

 


Laugardaginn 14. apríl er ráðstefnan
í húsnæði Brekkuskóla við Laugargötu á Akureyri

 

 


Ráðstefnugestir sem fljúga til Akureyrar

Athygli er vakin á flugverði og bókun flugs.
 Sjá: Gisting og ferðir

 

 

Last updated 07.03.2007