Söguaðferðin á Íslandi
Framsækni í námi og kennslu

Ráðstefna um Söguaðferðina haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri 24. september 2005

Á söguaðferðar-námskeiði

Á söguaðferðar-námskeiði

Skólaþróunarsvið kennaradeildar Háskólans á Akureyri heldur ráðstefnuna í samvinnu við Björgu Eiríksdóttur kennara í Kársnesskóla og Guðmund B. Kristmundsson dósent við Kennaraháskóla Íslands.

Efni ráðstefnunnar verður Söguaðferðin út frá mismunandi sjónarhornum. Auk aðalfyrirlesara kemur fjöldi kennara víðs vegar að til að flytja erindi á málstofum og deila þar með ráðstefnugestum dýrmætri reynslu sinni af söguaðferðinni.

Meðal aðalfyrirlesara á ráðstefnunni verða tveir af frumkvöðlum söguaðferðarinnar Skotarnir og kennslufræðingarnir Steve Bell og Sallie Harkness. Auk þeirra flytja aðalerindi Björg Eiríksdóttir, kennari við Kársnesskóla, Guðmundur B. Kristmundsson, dósent við KHÍ og María Steingrímsdóttir aðjúnkt við HA.

 

Til baka