Forsíða

Kynning

Dagskrá

Ágrip af erindum

Gisting og ferðir

Einn og tveir og inn komu þeir...
Stærðfræði fyrir byrjendur, 1-3ja ára

Laugardaginn 23. september 2006 gengst skólaþróunarsvið, kennaradeildar Háskólans á Akureyri fyrir ráðstefnu um nám og starf yngstu barnanna í leikskólanum með sérstaka áherslu á stærðfræði.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða tveir sænskir leikskólakennarar, Mikaela Sundberg og Susanne Hådén. Fyrirlestur þeirra heitir:

„Stærðfræði og hringir – hvar er stærðfræði fyrir tveggja og þriggja ára börn að finna“? (Matematik och cirklar – var finns matematiken för 2-3 åringarna?)

Fyrirlestrar verða túlkaðir á íslensku

Árið 2004 ákváðu leikskólakennarar á 22 deildum í leikskólasamfélaginu Kärrtorp-Enskededalen Stokkhólmi, að skoða með „gleraugum stærðfræðinnar“ starfið með 1 – 3ja ára börnum. Markmiðið var að koma auga á stærðfræðina sem felst í umhverfinu, en einnig að bjóða börnunum upp á margskonar efnivið og tengja stærðfræði. Leikskólakennarar útbjuggu margvísleg stærðfræðitæki úr ýmsum munum sem falla til í daglegu lífi fólks. Tilgangurinn var að reyna að skilja gegnum uppeldisfræðilegar skráningar hvernig stærðfræðin birtist í efniviði og tilraunum barnanna. Á ráðstefnunni munu Mikaela og Susanne rekja verkefnið bæði í máli og myndum og segja frá því hvernig verkefnið hefur fest í sessi og þróast áfram og verið hvati fyrir önnur verkefni.

Mikaela Sundberg, er leikskólakennari og hefur starfað sem faglegur ráðgjafi í mörg ár í leikskólasamfélaginu Kärrtorp-Enskededalens, þar sem sjö leikskólar eru saman undir einni stjórn. Auk ráðgjafar og handleiðslu, heldur Mikaela utan um og ber ábyrgð á endurmenntun leikskólakennara í leikskólasamfélaginu, Kärrtorp-Enskededalen í Stokkhólmi.

Susanne Hådén, er leikskólakennari í leikskólanum Skördevägen og er ein af upphafskonum stærðfræðiverkefnisins „Matamatik och cirklar“.  

Last updated 05.09.2006