Atvinnuhættir — verkefni

Hvaða ævintýri leynast í þinni heimabyggð?

Þegar þú ert búin/nn að kynnast ævintýrum þeirra Össu og Kára skaltu komast að því hvaða ævintýri leynast í þinni heimabyggð. Hér neðar á síðunni finnur þú hugmyndir að umræðuefnum og verkefnum sem þú getur unnið um heimabyggðina þína. Þú getur unnið verkefnin ein/einn en góð hugmynd gæti verið að vinna þau með einhverjum öðrum, t.d. bekkjarfélaga.

Ýmsar leiðir eru færar til að kynna fyrir öðrum það sem þú vinnur. Skemmtileg leið væri þó að búa til vefsíðu um heimabyggðina og setja hana út á Vefinn svo sem flestir hafi tækifæri til að kynna sér þá kosti sem heimabyggðin þín býr yfir.

Krækjurnar hér til beggja hliða eiga að hjálpa þér að leita að þeim upplýsingum sem þú þarft til að vinna verkefnin. Sennilega finnur þú samt ekki allar upplýsingarnar þar sem þú þarft á að halda og oft gerist það að vefir eru fluttir til og þá verða krækjurnar óvirkar. Þess vegna eru líka leitarvélar neðst á síðunni til að auðvelda þér að leita að þeim upplýsingum sem þú þarft.




Verkefni um sjávarútveg


Verkefni um sjávarútveg


Verkefni um landbúnað


Verkefni um landbúnað


Verkefni um iðnað


Verkefni um verslun




Google


[ Yahoo ]
 
© 2003 Eygló Björnsdóttir